Siðareglur

  • Kórfélagar skulu mæta vel á æfingar

  • Kórfélagar skulu mæta snyrtilegir, tímanlega og vel undirbúnir á æfingar þannig að þær geti hafist á réttum tíma.

  • Kórfélagar skulu tilkynna raddformanni um forföll á æfingar, aukaæfingar og aðrar uppákomur á vegum kórsins.

  • Kórfélagar horfa á stjórnandann, hlusta á hann og taka mark á honum.

  • Eftir að kórstjóri hefur slegið af lokatóninn bíða kórfélagar í þögn eftir skilaboðum um hvað skuli gerast næst.

  • Kórfélagar skulu, á æfingum og eftir því sem tök eru á, geyma samtöl sín á milli þar til gert er æfingahlé eða æfingu er lokið.

  • Kórfélagar skulu ekki tala í síma eða valda öðru ónæði meðan á æfingu stendur.

  • Kórfélagar skulu ekki neyta matar, drykkjar, tóbaks, tyggigúmmís eða annars sem kann að trufla æfingu meðan á henni stendur.

  • Kórfélagar skulu halda vel utan um nótur sem þeim hefur verið úthlutað og hafa þær með á æfingar eftir því sem æfingadagskrá gefur tilefni til.

  • Kórfélagar hjálpast að við að undirbúa æfingu og ganga frá eftir æfingu.

  • Kórfélagar ganga snyrtilega um alla æfingaaðstöðu.

Það er kurteisi við kórfélaga og stjórnanda að mæta vel á æfingar og taka vel eftir.

Góð mæting gerir allt kórstarfið skilvirkara.

Karlakór Kópavogs