Örstutt um kórinn:

Kórinn var stofnaður 16. október árið 2002 og hefur síðan haldið tónleika árlega og stundum tvisvar á ári. Samvinna hefur verið með Karlakórnum og öðrum kórum á nokkrum tónleikum.

Haustið 2005 tók Karlakór Kópavogs þátt í Landsmóti karlakóra sem haldið var í Hafnarfirði og söng þar m.a. í sameinuðum karlakór allra þátttökukóranna við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Haustið 2010 tók kórinn síðan þátt í Kötlumóti sem haldið var á Flúðum. Þar var einnig sungið í sameinuðum kór og í það skiptið við undirleik Stórsveitar Suðurlands.

Félagslífið í Karlakórnum er fjörugt og fjölbreytt, allt frá veisluhöldum í heimahúsum yfir í skipulagðar samkomur fleiri kóra.

Kórstjóri er Garðar Cortes


Formaður er Jakob Líndal - sími: 664 8801


Netfang:karlakor@karlakor.com - Kennitala: 711002-2350 - Reikningsnúmer: 1135-26-7150

Merki kórsins